Færsluflokkur: Bloggar
8.6.2009 | 18:48
Ég sauðkindin erum vinir.
Ég ætla að heilsa upp á Sauðkindina þegar ég fer að ferðast um landið. Sem er einmitt á morgun, vei hvað það verður gaman. Langt síðan ég hef heyrt í henni.
Núna erum við bæði orðin heimsfræg á Íslandi og þó víða væri leitað, ég með Leikhópnum Lottu og Sauðkindin að slá í gegn í Kína og ég veit ekki hvað..... zzzzzzzzzzzzz
Mis Greindar Grísa kveðjur
Hr Grís
Íslenska sauðkindin í tísku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2009 | 20:06
Ég ætla að dorga þegar ég kem til Ólafsvíkur
Ég er staðráðinn í því að dorga mikið þegar ég kem til Ólafsvíkur, ég var einu sinni árlegur suðurlandsmeistari í dorgkeppni svína undir 13 ára aldri. Og hlaut ég titilinn Dorgveiði grís ársins.
Ég veiddi stærsta síli sem nokkur Grís hefur séð, meira segja Grís hafði aldrei séð annað eins.
Hlakka til að sjá ykkur á bryggjunni.
Kær kveðja
Hr Grís
Dorgað í Ólafsvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2009 | 19:16
Ég fékk einu sinni máv í hausinn
Einu sinni þegar ég var niður á tjörn þá fékk ég máv í hausinn þegar ég var að borða andarbrauðið.
Það var ekki gott. En honum langaði bara í smá brauð. Við skiftum með okkur brauðinu og allir voru sáttir.
Girnilegar Grísa kveðjur
Hr Grís
Fékk máv í höfuðið á 100 km hraða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2009 | 15:21
gleðifréttir
Mikið er gott að heyra að það eigi að létta undir með námsmönnum.
Styrkir fyrir íslenska námsmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2009 | 16:24
Rauðhetta í Elliðaárdalnum og Hafnarfirði
Hæ kæru vinir og takk allir fyrir komuna sem hafið komið í heimsókn til okkar í Elliðaárdalinn og Kópavoginn..
Okkur langaði að segja ykkur að við verðum aftur í Elliðaárdalnum á morgun miðvikudaginn 3. júní kl 18:00 og svo á fimmtudaginn 4. júní ætlum við að heimsækja Hellisgerði í Hafnafirði og verðum þar kl 18:00
Vonumst til að sjá sem flesta!
Kveðja
Hans og Gréta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.5.2009 | 14:02
Rauðhetta í Kópavogi í dag
Rauðhetta verður á Rútstúni í Kópavogi í dag! Spáð er sól, hita og rigningu þannig klæðið ykkur eftir veðri.
1000 kr. fyrir börn og 1500 kr fyrir fullorðna.
Sjáumst undir regnboganum
Kveðja
Gréta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2009 | 10:54
Lotta segir : brosum og höldum áfram
Langaði bara að koma með smá jákvæðni inn í umræðuna.
Fullt af nýjum tækifærum á okkar stórkostlega landi.
Nýtum okkur skapandi hugsun og leitum að nýjum tækifærum.
Kær kveðja Addi Grís
85 fyrirtæki í þrot í apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2009 | 23:06
Rauðhetta líka í Kópavogi!
Sæl öllsömul
Þá er frumsýningunni okkar lokið og tókst alveg rosalega vel í alla staði, rættist heldur betur úr veðrinu og fengum glampandi sól og fullt af áhorfendum. Það er allt gott að frétta af okkur, og mætum við aftur til leiks á miðvikudaginn í Elliðaárdalnum kl 18:00. Á fimmtudaginn ætlum við að koma í heimsókn í Kópavoginn, nánar tiltekið á Rútstún (þar sem við vorum í fyrra, á túninu við sundlaugina) þar verðum við kl 18.
Ef veðrið leikur ekki við okkur þá endilega takið með ykkur hlý föt og teppi.
Bestu kveðjur
RósaBj.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2009 | 10:24
Frumsýning og veðurstofan spáir sól!
Upp er runninn frumsýningardagur, ákaflega skýr og fagur!
Í dag klukkan 14:00 ætlum við að frumsýna nýjasta stykkið okkar, Rauðhettu. Frumsýnt er í Elliðaárdalnum í Reykjavík og eru allir velkomnir.
Snæbjörn Ragnarsson skrifaði verkið en í því hefur hann blandað saman ævintýrunum um Rauðhettu og úlfinn, Hans og Grétu og grísina þrjá. Þá samdi hann ásamt Baldri bróður sínum og Gunnari nokkrum Ben 9 ný lög fyrir verkið, hvert öðru skemmtilegra. Úr þessu öllu verður um klukkutímalöng ævintýrasúpa sem allir ættu að gæða sér á.
Til að komast inní dalinn er Rafstöðvarvegur keyrður alveg upp að félagsheimilinu ofarlega í brekkunni, þar er lagt og gengið inní ævintýraskóginn í um það bil 3 mínútur þar til komið er að Indíánagili. Þar er fer sýningin fram og þar er einnig miðasalan okkar. Miðaverð er það sama og síðustu ár, 1.500 kr fyrir fullorðna og 1.000 kr fyrir börn. Við erum með posa á staðnum en það væri gott ef sem flestir gætu verið með pening þar sem posinn vill láta standa á sér og lengir það röðina talsvert.
Jeij, gaman gaman. Sjáumst í sólinni!
Frekari upplýsingar eru á www.leikhopurinnlotta.is - http://www.facebook.com/home.php#/pages/Reykjavik-Iceland/Leikhopurinn-Lotta/56939579991?ref=ts og í síma 770-0403.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2009 | 17:29
general
Já það er farið að styttast all svakalega í frumsýningu og ekki laust við að það sé komin spenna í mannskapinn.
Við ætlum að halda aðalæfinguna okkar (generalprufu) í Elliðaárdalnum klukkan 20:00 í kvöld. Hún verður opin og er hverjum sem er því frjálst að mæta og berja okkur augum.
Biðjum við þá sem hafa áhuga að mæta tímanlega, taka með sér teppi til að sitja á og góða skapið:)
ATH: um æfingu er að ræða, ekki sýningu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 3173
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- agny
- attilla
- asthildurcesil
- bjarnihardar
- bros
- gattin
- doggpals
- esgesg
- ekg
- einarvill
- garun
- eddabjo
- vinaminni
- gylfig
- skodun
- hallurmagg
- heidathord
- hildurhelgas
- don
- ingolfurasgeirjohannesson
- jennzla
- jensgud
- johannbj
- jp
- islandsfengur
- skjalfandi
- ktomm
- hugsadu
- askja
- photo
- larahanna
- terka
- omarragnarsson
- ragnarfreyr
- salvor
- einfarinn
- sjonsson
- stebbifr
- svanurg
- svavaralfred
- saemi7
- postdoc
Myndaalbúm
Tenglar
Sumarið 2010
Kort af Elliðardalnum
- Hér er kort af elliðardalnum Leggja bílnum hjá rafstöðvarvegi 20 ( Félagsheimilinu ) og labba þaðan niður göngustígin og svo yfir brúna. Frá brúnni eru þið ca 2 mínútur og 10 sek að labba inn í Indjánagil og þar sjáumst við.
Endilega skoðið síðurnar okkar
- Facebook síðan okkar Endilega verið vinir okkar
- Heimasíðan okkar Já, komdu og kíktu inn...
Hér eru nokkur gömul og góð myndbrot
- Piparkökulag Dýrin í Hálsaskógi sumarið 2007
- Lilli Klifurmús Dýrin í Hálsaskógi sumarið 2007
- Galdrakarlinn í Oz Sumarið 2008
Hér er fullt af skemmtilegum myndum
- Hellingur af stór skemmtilegum myndum Myndir hér, myndir þar, myndir alls staðar......
Gagn og Gaman
- Skemmtilegir leikir Fyrir Stóra og Smáa
Hvar verðum við sumarið 2009
- Sýningarplan sumarið 2009 Hvar er Lotta ?